Hvað er í bókinni?
Fjölbreyttir leikir
Leikir sem halda athyglinni, fá alla til að taka þátt og gera ferðalagið skemmtilegt frá upphafi til enda.
Samskipti & samvera
Leikir sem fá fjölskylduna til að tala saman, hlæja og kynnast betur á ferðinni.
Fræðandi & forvitnilegt
Verkefni sem vekja áhuga á Íslandi og fá börn til að spyrja spurninga og læra á skemmtilegan hátt.
Athugun & umhverfi
Leikir sem fá börn til að líta út um gluggann, taka eftir og tengjast því sem þau sjá.
Tússpenni
Með hverju eintaki fylgir ókeypis tússpenni með innbyggðum töfluhreinsi á lokinu.
Endurnýtanlegt
Hægt að nota aftur og aftur, þú bara tússar og strokar eins og þú vilt.
Skráðu þig á pöntunarlista
Við höfum samband og klárum kaupin
Viltu frekar borga strax með PayPal?
Þegar þú kaupir á netinu verður þú að borga í evrum, það er það eina sem er í boði
Saga Jæja
Við stofnuðum Jæja af því að okkur fannst foreldrar oft ekki hafa marga heilbrigða valkosti til að gefa börnum sínum í bílferðum. Annað hvort leiðist börnunum alla ferðina, eða þá gefa foreldrar þeim snjalltæki til að drepa tímann, ekki af því að þeim langar það heldur vegna þess að það er ekki margt annað í boði. Okkar markmið er að breyta því.
Til að ná því markmiði bjuggum við til bók sem inniheldur 30 blaðsíður með skemmtilegum leikjum og áhugaverðum fróðleik. Áhersla leikjanna er á að auka samskipti í bílnum, vekja forvitni og áhuga á Íslandi, bæta læsi og málkunnáttu, og fá krakkana til að skemmta sér án snjalltækja. Ásamt leikjunum er fróðleikur um Ísland og mismunandi landshluta.
Við vonum að þessi bók muni gera sumarið aðeins ánægjulegra.
Góða ferð!

